Shipping policy
Afhendingarskilmálar
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp ehf um afhendingu vörunnar. ÓliHilm Ceramics ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá ÓliHilm Ceramics til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Hægt er að sækja vörur á vinnustofu samkvæmt samkomulagi.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti eða Dropp ehf innanlands og Íslandspósti til útlanda. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli.